1. |
- Þorkelsson, Magnús, 1957-, et al.
(författare)
-
Að eiga frjálst val um framhaldsskóla : Markaðsvæðing innritunar nýnema í íslenskum framhaldsskólum
- 2024
-
Ingår i: Netla - Veftímarit um uppeldi og menntun. - : Menntavísindasvið Háskóla Íslands. - 1670-0244.
-
Tidskriftsartikel (refereegranskat)abstract
- Árið 1998 tók Menntamálaráðuneytið ákvörðun um að framhaldsskólanám ættiað verða „einn námsmarkaður“ í landinu öllu. Þar með var vikið frá fyrri stefnu umhverfaskiptingu framhaldsskólanna. Tilgangur breytingarinnar var að gera nýnemumkleift að velja sér hvaða skóla sem væri og var talið að brotthvarf myndi minnka ogmetnaður bæði í námi og kennslu aukast þegar nemendur yrðu innritaðir á grundvellieinkunna úr grunnskóla. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna afleiðingarupptöku markaðsfyrirkomulags á skólavali fyrir nýnema í framhaldsskólum ogvoru settar fram þrjár rannsóknarspurningar: 1) Hver hafa áhrif markaðsvæðingarinnritunarferlisins verið? 2) Hvaða munur kemur fram milli nemendahópa og milliskóla í umsóknarferlinu við innritun í framhaldsskóla? og loks 3) Hvernig má skiljaniðurstöðurnar í ljósi hugmynda um félagslegt réttlæti? Aðferðafræði rannsóknarinnarer greining á tölfræðigögnum frá Innu og innritunargögnum frá Flensborgarskólanum.Gögnin frá Innu sýna heila árganga og mynstur í umsóknum um framhaldsskóla eftirtíunda bekk. Innritunargögnin úr Flensborg voru kóðuð svo hægt væri að fylgja eftireinstaklingum í gegnum kerfið en engum persónugreinanlegum upplýsingum varsafnað. Niðurstöðurnar sýna að ákveðinn hópur framhaldsskóla hefur sterka stöðu áskólamarkaðnum þar sem þeir hljóta stóran hluta umsókna frá nemendum með háareinkunnir. Það þýðir að sumir skólar eiga þann kost að velja til inntöku nemendur semstyrkir síðan aftur samkeppnisstöðu þeirra. Samtímis sýna gögn Flensborgarskólans aðaðrir skólar eru í lakari samkeppnisstöðu og þurfa að taka inn stærri hluta nemendameð lægri einkunnir og flóknari þarfir fyrir stuðning. Ályktun höfunda er að ábyrgðiná námi framhaldsskólanemenda hafi að hluta verið færð frá hinu opinbera yfir á valnemendanna. Einnig er bent á að þótt stjórnvöld geti sagt að stór hluti nemenda (95%)fái annaðhvort fyrsta eða annað val sitt, þá sé ýmislegt sem bendi til að nemendur veljiskóla mjög ígrundað út frá möguleikum um innritun.
|
|
2. |
|
|
3. |
|
|
4. |
|
|