1. |
- Garoarsdottir, Helga Run, et al.
(författare)
-
Árangur kransæðahjáveituaðgerða hjá konum á Íslandi
- 2018
-
Ingår i: Laeknabladid. - : LAEKNAFELAG ISLANDS-ICELANDIC MEDICAL ASSOC. - 0023-7213 .- 1670-4959. ; 104:7-8, s. 335-340
-
Tidskriftsartikel (refereegranskat)abstract
- InngangurMarkmið þessarar rannsóknar var að bera saman árangur kransæða-hjáveituaðgerða hjá konum og körlum á Íslandi með áherslu á snemm- og síðkomna fylgikvilla, 30 daga dánartíðni og langtímalifun.Efniviður og aðferðirAfturskyggn rannsókn á öllum sjúklingum sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð á Íslandi á árunum 2001-2013. Upplýsingar fengust úr sjúkraskrám og Dánarmeinaskrá Embættis landlæknis. Fylgikvillum var skipt í snemm- og síðkomna fylgikvilla og heildarlif-un reiknuð með aðferð Kaplan-Meier. Fjölþátta aðhvarfsgreining var notuð til að meta forspárþætti dauða innan 30 daga og Cox aðhvarfs-greining til að meta forspárþætti verri langtímalifunar. Meðaleftirfylgd var 6,8 ár. NiðurstöðurAf 1755 sjúklingum voru 318 konur (18%). Meðalaldur þeirra var fjórum árum hærri en karla (69 ár á móti 65 árum, p<0,001), þær höfðu oftar sögu um háþrýsting (72% á móti 64%, p=0,009) og EuroSCOREst þeirra var hærra (6,1 á móti 4,3, p<0,001). Hlutfall annarra áhættu-þátta eins og sykursýki var hins vegar sambærilegt, líkt og útbreiðsla kransæðasjúkdóms. Alls létust 12 konur (4%) og 30 karlar (2%) innan 30 daga frá aðgerð en munurinn var ekki marktækur (p=0,08). Tíðni snemmkominna fylgikvilla, bæði minniháttar (53% á móti 48% p=0,07) og alvarlegra (13% á móti 11%, p=0,2), var sambærileg. Fimm árum frá aðgerð var lifun kvenna 87% borin saman við 90% hjá körlum (p=0,09). Þá var tíðni síðkominna fylgikvilla sambærileg hjá konum og körlum 5 árum frá aðgerð (21% á móti 19%, p=0,3). Kvenkyn reyndist hvorki sjálfstæður forspárþáttur 30 daga dánartíðni (OR 0,99; 95%-ÖB: 0,97-1,01) né verri lifunar (HR 1,08; 95%-ÖB: 0,82-1,42).Ályktun Mun færri konur en karlar gangast undir kransæðahjáveituaðgerð á Íslandi og eru þær fjórum árum eldri þegar kemur að aðgerð. Árangur kransæðahjáveitu er góður hjá konum líkt og körlum, en 5 árum eftir aðgerð eru 87% kvenna á lífi.
|
|