1. |
- Gunnarsdottir, Guorun Mist, et al.
(författare)
-
Endurtekin krampaköst hjá ungri konu : sjúkratilfelli
- 2016
-
Ingår i: Laeknabladid. - : Laeknabladid/The Icelandic Medical Journal. - 0023-7213. ; 102:7-8, s. 339-342
-
Tidskriftsartikel (refereegranskat)abstract
- 18 ára hraust stúlka kom endurtekið á slysadeild á 6 vikna tímabili vegna krampakasta. Engin fyrri saga var um flogaveiki og hún tók engin lyf. Myndrannsóknir og heilalínurit bentu ekki til flogaveiki. Hún mældist með lækkaðan blóðsykur í tvígang á slysadeild, 1,3 mmól/L og 1,7 mmól/L (4,0-6,0 mmól/L). Vaknaði þá grunur um insúlínmyndandi æxli. Gerð var víðtæk leit að æxlisvexti sem bar engan árangur. Var hún því send erlendis í frekari uppvinnslu, meðal annars í jáeindaskanna og sérhæfða æðamyndatöku. Hún var að lokum greind með nesidioblastosis. Hér verður fjallað um sjúkratilfellið auk yfirferðar um þennan sjaldgæfa sjúkdóm og uppvinnslu á honum.
|
|